|
|
28.09.2006 19:20:42 / Hilmar
Hæhæ. Loksins skrifa ég eitthvað
hérna. Það er orðið
töluvert langt síðan síðast. Héðan er allt fínt að
frétta. Skólinn
byrjaður aftur eftir eitt best veðraða sumar sem ég hef
upplifað, það var nánast 25°c hiti á hverjum degi, ekki slæmt
það. Verst að hafa
verið Harley laus í þessu veðriL Arnar Vilbergs kom í
heimsókn í byrjun september. Það var yndislegt að fá að
hitta meistarann aftur þó að stoppið hafi verið stutt hjá
honum. Við
skemmtum okkur alveg konunglega. Árni Már og Haffi fluttu
hingað út í lok ágúst og ætla að vinna hérna í Horsens til
jóla. Fá
nasaþefinn af því að búa í
útlandinu. Þeir
eru svo að pæla í því að koma hingað í skóla eftir næsta
sumar.
Fleira hef ég ekki að segja í bili en
ætla að reyna að skrifa eitthvað á þessa blessuðu blogg síðu mína
fljótlega aftur. Er
ekki sá duglegasti í þessu bloggi.
Kwahery (bæbæ á Svahilí)
hehe...
ps. nýjar myndir komnar.
»
08.05.2006 18:31:12 / Hilmar
Hérna er búið að vera dúndrandi
sumarveður seinustu daga. Yfir 20 stiga hiti og
fínirí. Um helgina
var gólfmót hjá Íslendingunum og tók képpinn
þátt. Fyrsta
gólfmót kappans hehe. Svaka fjör. Við Bjössi fórum svo á
‘JENSEN’S BØFHUS’ og fengum við okkur cheese burger og vöflur
og ís í eftir rétt. Ég get nú sagt fyrir mína
parta að þetta Jensen’s er ekki það besta sem ég hef
prófað.
Svo var haldið til Århus kl 23:30 með
lestinni í party til Hisham (bekkjarfélagi minn). Þegar þangað var komið var tekinn
strætó og svo stuttu seinna vorum við komnir á leiðar enda
‘stænaldervej’ þar var
eitt það svakalegasta partý sem ég hef séð, tvö stk. karlmenn,
that’s it!!! Höfðu þá
allir kanselað komu sína nema við Bjössi og einn annar, kolsvartur
bekkjarbróðir. Við
spiluðum á allskonar afrískar trommur og önnur hljóðfæri í góðan
tíma, sem var svosem alveg ágætt.
En svo var mál að koma sér heim og
ætluðum við að taka nætur rútuna til Horsens. Við byrjuðum á því að missa af
strætó frá ‘stænaldervej’ og næsti kom ekki fyrr en hálftíma
seinna, þannig að við ákváðum að bíða aðeins á barnum þar sem við
höfðum eitt kvöldinu.
Eftir smá bið og spjall ákváðum við nú að ná þessum strætó en það
fór ekki betur en svo að við vorum 5 mín. Of seinir og þetta var
víst seinsati strætóinn þessa nóttina. Við gengum því af stað í átt að
miðbæ Århus og fengum loks taxa eftir 30-40 mín
labb. Hann
skutlaði okkur að rútustöðinni og vitið menn seinasta rútan
var líka farinn frá okkur. Fuck...við erum fastir í
Århus...!!!
lestar stöðin var ekki langt í burtu og við töltum
þangað. Það leit
ekki betur út en svo að næsta lest fer ekki fyrr en hálf sjö
næsta morgun.
Þar þurftum við að hanga í kringum pönkara, manson pakk og
annan óþverralýð. Lestin kom að sjálfsögðu á
réttum tíma og vitið menn...við náðum henni hehe. Við komum heim um 7 leitið
og þá var farið beinustu leið í bólið enda búinn að vaka í
nærri sólarhring.
Það varð ekki mikið úr sunnudeginum
en við kíktum aðeins á Óskar um kvöldið til að reikna U-value og
svo var horft á ‘Prison break’...geggjaðri þættir verð ég að
segja. Svo var Jim
Carrey session í TV og horðum við á 2 myndir.
Dagurinn í dag var ósköp
venjulegur, farið í
skólann og svo var spilaður fótbolti kl 1700 í þessu geggjaða
veðri. Svo fæ
ég loksins beddann minn og sjónvarpið á föstudag. Mikið verður
gaman þá.
»
01.05.2006 13:20:20 / Hilmar
Loksins er
sumarið komið hérna. Sólin orðinn fastagestur og
hitinn verður meiri og meiri. Á föstudaginn var boðið til
grillveislu hjá Óskari, sem keipt sér svaka flott kolagrill af
bestu gerð. Þar
voru grillaðir burgers and cheeseburgers. Svo þegar búið var að borða
voru spilin tekin upp og spilað poker.
Ég og Bjössi
löbbuðum svo heim og ákváðum að rölta í gegnum miðbæ
Horsens. Okkur til
mikillar furðu var allt morandi í tjöldum og folk í röðum út um
allan miðbæ. Fólkið
var að bíða eftir að miðasalan í NyTheatre opnaði svo það gæti nælt
sér í miða á Madonnau tónleika sem verða hérna einhverntíman í
sumar.
Á laugardaginn
keiptum við Bjössi gasgrill, ‘Gourmet’ heitir gripurinn og virkar
svaka vel. það kostaði
lítinn 600 kall en kúturinn var 100 d.kr. dýrari.
Hehe
eðalgrill hér á ferð.
Stundataflan fyrir
skólann er half brengluð fyrir þessa vikuna. Það er nefnilega þannig að einn
af kennurunum slasaðist einhvernveginn og braut nokkur bein og
meira. Og þá fer allt
til helvítis hérna. Í
dag erum við búin að bíða eftir kennslu en enginn kennari kemur
fyrr en hálf 3 og svo er tíminn búinn kl 4. þetta er víst allur skóinn í dag
og svo verður vikan í svipuðum stíl. En það verður fótbolti í dag og
það verður tekið með trompi, vantar bara Beckham skyrtuna, þá gæti
maður potþétt aðeins meira hehe.
»
25.04.2006 12:14:09 / Hilmar
Sæl
veriði. Það hefur
margt gerst hérna í Danmörku síðan ég skrifaði
síðast. Ég er
fluttur í stærri og mun betri íbúð. Þetta er 50m² íbúð á efstu
hæð. Hún er nú half
tóm núna, bara með sófann og sófaborðið, en það styttist í að
keypt verður borð og stólar.
Ég fór heim til
islands um páskana.
Það var ágætt að komast aðeins á klakann, og hitta fjölskylduna og
vini. Það var að
sjálfsögðu tekinn hjólatúr með strákunum til
Keflavíkur. Fór
á KFC og American Style, sjaldan verið sáttari með
skyndibita. En
það var gott að koma til baka í góða veðrið og
rólegheitinn.
Það er allt of mikið stress þarna á klakanum.
Hérna er sumarið
nánast komið. Sól og
20C° hiti og verður bara betra með hverjum deginum.
Í gær var fótbolti
hjá Íslendingunum hérna og ég mætti galvaskur í nýju takkaskónum
mínum með legghlífar og allan pakkann. Það var svaka stuð fyrir utan
eitt lítið óhapp, fékk knöttinn í djásninL
mikið svakalega er það vont!!! Eftir smá hvíld og kvalir var
stokkið aftur inná.
Við spilum tvisvar í viku, sem er ágætis plan. Gott að fá einhverja hreifingu
til að vega á móti bjórnumJ
Ég setti inn
slatta af myndum (ýmsar myndir 3) þær eru m.a. af nýju íbúðinni.
Ferðum til kóngsins köben
o.fl.
Bið kærlega að
heilsa að sinni.
Hilmar M.
»
19.03.2006 13:52:43 / Hilmar
Í seinustu viku
skiluðum við ‘outline proposal’. Það gekk bara alveg rosalega
vel hjá kallinum.
Við Geiri skelltum okkur að sjálfsögðu strax á barinn eftir
skóla og fengum okkur nokkra kalda. Það var æðislegt að geta
slappað loksins af.
Gömlu hjónin komu svo í heimsókn seinna um daginn, mikið var
gaman að sjá þau aftur! Við skoðuðum bæinn aðeins og
fórum svo heim í litlu holuna og fengum okkur smá kaffi
tár. Svo var farið
út að borða á ‘Jensens Buffhus’ sem er ágætis steikhús hér í
bæ. Fengum okkur
þar dýrindis pepper steik og bbq spareribs’. M og P gistu á hótelinu sem
stendur við göngugötuna, en það var byggt um
1745. Alveg
magnað að koma inn í þetta hús og skoða. Allt loftið og glugga
karmar ofl. Út skorið í einhverju flottu munstri.
Um hádegi á
laugardeginum lögðum við svo af stað til kóngsins
Köben. Þegar
þangað var komið tók við leit af hóteli. Allt meira og minna
uppbókað alstaðar en við fundum samt eitt hotel, ekki upp á marga fiska en
það dugði alveg fyrir eina nótt. Við fórum svo um kvöldið í
heimsókn til Auðar og Guðna, sem eru vinafólk m og
p. En þau eru
búin að búa í Köben í mörg ár. Við fórum svo öll út að
borða ásamt Snædísi, dóttur þeirra.(algert augnar
konfekt). Fórum
á einhvern Ítalskan veitingarstað, sem er með þeim betri sem
ég hef farið á.
Þar skemmtum við okkur konunglega með 4 rétta máltíð og
alles.
Á sunnudeginum var
svo farið í skoðunar ferð um kóngsins Köbenhavn. Sáum litlu hafmeyjuna, óperuhúsið
sem er stórfenglegt, kirkju sem er öll gerð úr marmara, og löbbuðum
í gegnum garðinn það sem jú, sjálf drottning Dana og hennar
fjölskylda býr. Ég
komst að þeirri niður stöðu að Köbenhavn er stórkostleg
borg. Þarf að koma mér
þangað sem fyrst aftur. Ég kvaddi svo m og p um 8 leitið
og tók lestina til baka til Horsens. Fékk mér ‘first class ticket’ það
dugar ekkert annað
Vikan sem leið var
frekar róleg í skólanum, kominn tími til. Á Fimmtudeginum var eldaður
‘chinese dinner’ og þar voru engir amatörar á
ferð. Chen chen,
Kínversk bekkjasystir mín kom og eldaði fyrir okkur
Bjössa. Það var
dýrindis máltíð og við munum fljótlega elda saman aftur.
Á föstudeginum var
svo farið á tónleika, sem haldnir voru í
skólanum. Það
voru engir aðrir en ‘DER HERREN’ sem voru að spila fyrir
dansi, en það er danskt ‘U2 cover band’. Við byrjuðum kvöldið heima
hjá Geira og Ástu. Fengum okkur öl og burger áður en haldið
var af stað á tónleikana. Þeir voru ágætir, þrátt
fyrir að ég sé engin U2 aðdáandi.
Laugardagurinn var
svo tekinn snemma og var ákveðið að skreppa niðrí’ bæ og skoða
ískápa fyrir nýju íbúðina. Það vildi ekki til betur en svo
að það var búið að loka búðinni. Þessi ískápa skoðunar ferð endaði
á því að ég var kominn með 12 geisladiska með Frank Sinatra og
Miles Davis, ýmiskonar búsáhöld fyrir köku gerð
ofl. Bjössi og
ég elduðum okkur svo ‘pasta carbonara’ og ‘scrambled’
egg, og ekki nóg
með það, þá var líka bakað. ‘Brownies’ súkkulaði terta
var bökuð og hepnaðis alveg ágætlega.
»
08.03.2006 09:13:42 / Hilmar
Það er búið að
vera geðveikt að gera í skólanum. Er þar nánast allan
sólarhringinn. Á
föstudaginn eigum við að skila ‘outline proposal’ hugmynd af
húsi sem við munum svo vinna meira með þar sem eftir er af
önninni. Þetta er
alveg heljarinnar vinna, en alveg rosalega gaman.
Um daginn fórum
við Bjössi til Århus og skoðuðum göngugötuna ofl. Fundum Steikhús sem selur
kengúru og krókódíla kjöt. Við ætlum að fara fljótlega
aftur og bragða á herlegheitunum.
Ég flyt í nýja
íbúð 1 apríl. Það
verður allt annað líf en í þessari holu sem ég bý í
núna. Sú nýja er
nánast á sama stað og sú gamla, bara hinumegin við götuna og ögn
nær skólanum. Og við
hliðina á skólabarnum, sem er mjög gott. Íbúðin er 50m², 2
herbergja. Húsið er
nánast glænýtt, var tekið í notkun um miðjan desember í fyrra.
»
16.02.2006 23:15:35 / Hilmar
Jæja, sæl
veiði! Vikan er
búin að vera strembin. Mikið að gera í
skólanum. Á
mánudaginn byrjuðum við í eðlisfræði. Það er ekki það léttasta sem
kallinn hefur lært, ‘forces, motions og kNewton’….hugtök sem eru
á boðstólnum þar.
Var alveg ‘lost’ í þessu first, en þetta er smá saman að síast
inn. Svo er það
stærðfræði og teikningar sem er alveg nóg af …‘Isometric og
‘prospective’. Erum
líka að læra um allrahanda lagnir í húsum, hitaveiturör,
skolplagnir o.fl.
Bekkurinn kemur úr
mörgum áttum og er honum skipt niður í nokkurskonar hópa, til þess
að ná fólkinu upp á svipað ‘level’. Sumir fara í stærðfræði (ég) og
aðrir læra á tölvur (aðallega Afríku fólkið) Þeir sem ekki þurfa á þessum
tímum að halda fá að skrifa ritgerðir. =) Ég lendi í að skrifa stuttar
ritgerðir, en það er ein á viku (7 vikur). Í hverri viku á að skrifa um
eitthvað ákveðið ‘material’ og er fyrsta vikan helguð
steinsteypu. Svo í
annarlok á að halda fyrirlestur um allar ritgerðirnar sem hafa
verið gerðar yfir veturinn. Annars er þetta bara helvíti
fínt.
Síðastliðinn
laugardag var þorrablót hjá Íslendingafélaginu í
Horsens. Það var rúta
sem skutlaði liðinu út fyrir bæinn og á blótið sem var haldið í
litlum samkomusal. 6
bjóra bjórkort á 50dkk og þrefaldur eðal ‘CAPTAIN MORGAN’ á
40dkk. Það var rokið
beinustu leið á barinn og fengum við okkur staup, svona til að koma
okkur í gírinn!
Maturinn var yndislegur, hangikjöt og saltkjöt, harðfiskur og
íslenskt smjör. Ég lét
samt pungana og hákarlinn alveg eiga sig. Flestir sem borðuðu það voru
annaðhvort í veðmáli eða að sanna karlmennskuna.
Veislustjórinn fór
á kostum, veit ekkert hvað hann heitir, en hann hélt uppi svaka
stuði allan tímann. Eftir matinn og ballið var haldið aftur til
Horsens en við strákarnir ákváðum að kíkja aðeins á skemmtistaði
bæjarins. Við byrjuðum
á því að fá okkur kebab, en þar tíndi ég strákunum, var of
upptekinn af því að tala við 2 múslima sem voru frekar sárir út í
lífið hérna í Danmörku vegna þessa blessuðu Muhamed
mynda. Ég reyndi að
koma vitinu fyrir þá, skipta bara um trú og þá væri þetta alltsaman
úr sögunni. Það er
víst bannað samkvæmt Kóraninum sögðu þeir mér. Það er engin trú
nema sú sem ‘ALLA’ lofar. Þegar ég var svo búin að ræða
heimsmálin við þessa herra menn ákvað ég að kíkja á klúbbana og
eftir vill rekast á strákana. Þá var öllu búið að loka nema
einum og var enginn sjáanlegur þar inni sem ég
þekti. Taxinn
var svo tekinn heim um 6 leitið. Ágætis kvöld í alla
staði.
Sunnudagurinn var
ekki upp á marga fiska. Var frekar slappur efri
laugardags kvöldið.
Ákvað að fara í sund, en það er ágætis sundlaug
hérna. Með fullt
af stökkpöllum og rennibraut. Þetta var að sjálfsögðu
innilaug. Úti
pollurinn er náttlega bara opinn yfir
sumartímann.
,,Það er allt of kalt til að vera í útilaug núna” væla
þeir.
Ég sótti um íbúð í
Odinsgaard í vikunni en það eru glænýjar íbúðir hérna við hliðina á
mér. Þær eru
50fermetrar og kosta það sama og 18fremetra holan sem ég bý í
núna. Vona að ég fái
svar sem first. Er að
verða geðveikur hérna.
Þetta er svo lítið að maður er nánast fyrir sjálfum sér hérna
inni. Þetta er bara
rugl!!!
»
10.02.2006 23:51:22 / Hilmar
Jæja, þá er ég loksins kominn aftur á
netið. Biðst velvirðingar á töfinni. Talvan er búin að vera
biluð í heila viku. Það byrjaði allt á því að ég þurfti að
tengja tölvuna við skólanetið og fór því í 'IT-servise' eins
og tölvuverið er kallað hérna. Meistararnir þar gerðu
einhvern fjandann og allt fór í klessu...ekkert hægt að gera
nema 'DELET' og 'FORMAT' nöldurðu þeir Það kom að
sjálfsögðu ekki til greina að eiða öllum myndunum og fleiru
dóti úr tölvunni. Þannig að ég fór heim með ónýta tölvu sl.
föstudag. Vikan er búin að fara í það að reyna að laga þetta
helvíti. Svo loksins í kvöld komst þetta, á ótrúlegan hátt, í
lag eftir 10 klukkutíma heilabrot. Ég náði að gera þetta
sjálfur (ótrúlegt en satt). Fyrsta tölvuviðgerðin
mín
Seinasta helgi var frekar róleg. Æfði mig aðalega á gítarinn.
Svo festi ég kaup á reiðhjóli, svaðaleg 3 gíra græja með böglabera
og brettum og ljósum að framan og aftan. 'BUSETTO - strada comfort'
heitir kvikindið!
Vikan er, þrátt fyrir tölvuleisið, búin að vera stórfín. Ég
skráði mig í Íslendinga félagið í Horsens. Og var dreginn í
körfubollta á þriðju- og miðvikudag. Félagið leigir sal hérna á
veturna. Bjössi, sem er á 2 önn, bauð mér í steik í vikunni. Það
var rosa fínn matur hjá stráknum. Gott að fá loksins almennilegan
mat hérna.
Það er lært mikið hérna og oft er maður til 11 eða 12 á kvöldin
í skólanum. Kerfið hérna er flott. Allir nemendur eru með
kortalykil frá skólanum og geta verið í skólanum hvenær sem er
sólarhrings. Það hentar mér ágætlega að vera þarna seint á kvöldin
í róg og næði og dunda mér yfir teikningum.
Á morgun (laugardag) er Þorrablót hjá Íslendinga félaginu og svo
dansiball á eftir með engum öðrum en Írarfári (mínus Birgittu). Það
verður haldið, hérna rétt fyrir utan Horsens, í 'HATTING
FORSAMLINGSHUS' einhverjum samkomusal í litlum bæ þar sem m.a.
Hatting smábrauðin góðu eru bökuð!!! Það var uppselt á blótið áður
en ég kom hingað til Danmerkur en það losnaði einn miði í gær og ég
stökk á hann. gaman gaman
»
01.02.2006 20:52:14 / Hilmar
Dagurinn í dag var fínn. Mætti í skólan í morgunmat með
restinni af bekknum. Við vorum látin byggja turn úr pappír
(A4 blöðum) og sá hópur sem gat byggt hæðsta turninn vann.
Þetta varð náttúrulega allt að standa stuðningslaust.
Hópurinn minn varð í 2.sæti, en það vantaði bara 8cm uppá að við
myndum vinna. Hæðsti turninn var 256cm á hæð.
Eftir hádegi tókum við strætó í átt að keilusalnum.
Strætóbílstjórinn klessti svo á einhvern bíl á leiðinni og við
þurftum að bíða í hálftíma eftir vara strætó. Það urðu sem
betur fer engin slys á fólki. Loks komumst við í keilusalinn
og tókum 2 - 3 leiki. Það er alltaf gaman í keilu. Svo
var boðið upp á hlaðborð með rifum og kjúkling og öllu meðlæti,
rosa fínn matur. Eftir það tókum við taxa á Iðnaðarsafnið í
Horsens, en þar var okkur rétt spurningarblöð og áttum við að ganga
um safnið og finna svörin. Þetta var nú ekkert sérstakt safn
að mér fanns. Gamlar prenntvélar, símar og svoleiðis dót.
Það voru tveir nemendur af 2. ári sem slóust í hóp með okkur og
sögðu okkur aðeins frá hvernig þeim fannst 1.önnin. Annar
þeirra var íslendingurinn Bjössi, ágætis náungi. Hann gaf
okkur góðar upplýsingar um hvar væri gott að versla og hvað væri í
boði í bænum.
Efir safnferðina fórum við inná kaffihús í grendinni og fengum
við okkur kaffi og með því. Svo var farið heim og lagt
sig Ég eldaði mér ommilettu í kvöldmat og heppnaðist hún
mjög vel, alveg 'prima'. Hugsa að ég fari snemma í háttinn í kvöld
eftir erfviðan, en vel heppnaðan dag.
»
31.01.2006 20:57:24 / Hilmar
Fyrsti skóladagurinn var í dag. Skólastjórinn hélt ræðu og svo
var okkur komið fyrir í bekkjum. Ég lenti með allra þjóða
kvikindum. M.a. frá Kína og Úrbekistan (...eða eitthvað í þá
áttina) og svo er fólk frá Afríkuríkjum á borð við Mónakó, Eþjópíu
og Gana. En flestir drengirnir þaðan eru 'single' og langar að
giftas dönskum konum. Ég er eini Íslendingurinn í bekknum, sem er
ágætt. Held að maður kynnist menningu annarra bekkjasystkina betur.
Íslendingar eru um 90, að mér skilst, í þessum 500 manna skóla. Það
voru tveir Danir í bekknum í morgun en annar þeirra ákvað að farar
frekar í danska kúrsinn. Hinn verður líklegas áfram, ágætis
piltur.
Á morgun verður farið í keilu og á eitthvað safn. Þetta er, jú
allt gert til þess að þjappa hópnum saman. Vikan verður öll í
rólegheitum og fólkinu leift að kynnast örlítið áður en námið
byrjar. Alvara lífsins byrja svo í næstu viku.
Sófinn kom í kvöld og ég var að klára að púsla honum saman,
kemur rosa vel út. Loksins er hægt að koma öllu á sinn stað í litlu
höllinni.
Ég fann bakarí, Sundpark Kondidoriet, hérna rétt hjá um
helgina. Flott að geta fengið nýbakað brauð og góðar
kökur á hverjum degi. Það jafnast samt fátt á við
Bakarameistarann í Iðnbúðinni.
»
27.01.2006 19:34:14 / Hilmar
Ég er búinn að vera hérna í Danmörku í 3 daga. Hef þurft að sofa
á hörðu gólfinu þessa daga. Fékk loksins sófann og borðið í dag og
er búinn að vera að dunda mér við að setja þessi húsgögn
saman. Sófinn var samt smá gallaður, en ég á að fá nýjan á
þriðjudaginn.
Hérna í Horsens er frekar kalt og það er snjór yfir öllu. Það er
samt búið að vera þægilegt veður, þennan stutta tíma sem ég hef
verið hérna.
Ég mun svo reyna að setja fleiri frétti hérna á síðuna reglulega
á meðan ég er hér í Danmörku.
»
|
|